Gott að vita að manns góðu vinir á Ítalíu eru for real :) fékk skemmtilegar fréttir frá einum þeirra í dag og það er ástæða til að fagna í kvöld því að ég er kominn með damn góða frétt í næstu viku, takk einnig sæta stelpan á dýru Ölfunni fyrir brilliant bréf :) Einnig í næstu viku, drengur að nafni Jónas með sögu sína af góðum samskiptum við Heklu vegna gallaðrar Polo bifreiðar, vitnisburður sem verður Heklu til sóma :) posted by Halld� 10:57 AM . . .
Ók framhjá Ístraktor í dag og sá úr fjarlægð miða á hurðinni sem vakti forvitni mína, var að vona að þetta væri tilkynning um lokun og aðrir væru að taka yfir þessa starfsemi, það reyndist hinsvegar ekki vera svo ljúft, þettta var tilkynning um enn minnkandi þjónustu, í þetta skiptið í formi lokunar næstu laugardaga... en það sem mér þótti skondið var að fyrirsögnin á téðum miða var flennistór "Kæru viðskiptavinir" mín reynsla að eina sem kæra tengist viðskiptavnum Ístraktor séu hótanir um lögsóknir sem byggðar eru á engu nema kannski því að ég aula útúr mér hvernig bíllinn hefur verið og hvernig forkastanleg viðbrögð Páls Fiatkóngs hafa verið... Ó, fyrst ég sagði aðég hefði ekið framhjá er rétt að taka fram að ég er á lánsbíl, Daihatsu Charade, ekinn um 120 þúsund og gengur enn fínt, Alfan mín sem er í raun ónýtur Fiat með hærri verðmiða entist auðvitað bara 67000 kílómetra, meiks jú þínk. Enn bíð ég eftir kærunni frá Ístraktor, skil reyndar ekki hvernig hægt er að kæra fyrir róg þarsem ég hef ekkert sagt ósatt en það hlýtur að byggjast á því að Páll ætli að fara með rangt mál fyrir rétti... allaveganna sendi ég honum póst fyrir 2-3 vikum þarsem eg bað hann að láta mig vita ef ég færi með rangt mál, engar athugasemdir bárust og lít ég því þannig á málið að kappinn hafi samþykkt það sem hérna kemur fram... posted by Halld� 9:19 AM . . .
Það má benda á að Alfa Romeo er náttúrulega Fiat svo maður má kannski vera kátur með endingu allt að 67000 kílómetrum... posted by Halld� 7:09 AM . . .
Úr FÍB blaðinu: "Fiat Punto. Mest seldi bíll í Evrópu um þessar mundir en líka sá bilanagjarnasti. Vel hannaður og rúmgóður smábíll, en þyrfti að vera vandaðari" Hmmm, FÍB verður upprætt þegar þeir sjá þetta hjá umboðinu... ...eða er það ekki? kannski ráðast þeir bara á einstaklinga með hótunum, náttúrulega auðveldari barátta, fyrirtæki á móti einum litlum kúnna sem er hvorteðer ekki sterkur fyrir vegna þess að bíllinn hans er ónýtur.... jammsa, skrítið líf :) í flokki minni meðalbíla er Fiat Bravo/Brava/Marea í öðru sæti yfir háa bilanatíðni samkvæmt sömu könnun sem birtist í FÍB blaðinu og er hún unnin af ADAC sem er systurfélag FÍB í Þýskalandi. posted by Halld� 4:53 AM . . .
Varð að kíkja inn aftur og þakka "Akureyringi" fyrir bréfið, á skíðum skemmti ég mér fala la la...... posted by Halld� 5:13 PM . . .
Sunnudagur og ég er samt duglegur við að vinna heimavinnuna mína, er búinn að vera að safna vitnum fyrir uppkomandi lögsókn. Grundvallar mistök hótarans í Ístraktor er náttúrulega sá að til að um atvinnuróg eða meiðyrði sé að ræða verður að vera ósannindi í því sem maður lætur frá sér. Það hefst þó allaveganna uppúr þessu að ég er í sambandi við skemmtilegt fólk, en auðvitað óheiðarlegt og ómerkilegt inná milli... posted by Halld� 5:01 PM . . .
Ég var nú bara að kíkja á póstinn en varð að kíkja inná bloggið og henda inn þökkum fyrir frábæra tölvupósta, kíp itt kommínng.... Maður peppast heldur betur upp við suma þessa pósta :) adressan er halldor_e@hotmail.com posted by Halld� 2:22 PM . . .
Skutlaðist á Kaffihús í hálftíma með kunningja mínum sem er lögfræðingur, það var mjög gaman. Hann sagðist hlakka til þegar allt færi í háaloft og þetta dæmi með mig og lögsókn vegna dagbókar minnar væri næsta "Í skóm drekans" dæmi. Mér fannst þetta djúpt í árinni tekið en vissulega er umræða holl og núna eru einhverjar þúsundir sem koma hér inn og lesa dagbókina en við alvöru umfjöllun næ ég eflaust hátt í hundrað þúsund manns hingað. Páll virðist ekki muna það sem hann sagði við mig áður en hann kvaddi ekki og rauk burt frá mér, ég sagðist skilja að hann gæti ekki lofað árangri ef hann reyndi að tala við þá á Ítalíu, ég sagðist alveg sáttur við það enda væri betra að lofa engu og gera svo bara sitt besta en ég bætti því við að ef að ég sæti bara uppi með ónýtan bíl ekinn ekki meira þá myndi ég að sjálfsögðu segja sögu mína og það varð til þess að hann Páll sagði að fyrst ég ætlaði að vera með svona "hótanir" þá fengi ég bara engan sörvis..... hver er vandamálið í þessum samskiptum? er ég vondi kallinn að segja frá svona reynslu? dæmi hver fyrir sig og ef fram fer sem horfir, ekki bara lítill nethópur heldur landsmenn allir. posted by Halld� 8:12 AM . . .
Mín stærstu mistök í lífinu voru að kaupa Alfa Romeo, hef aldrei lent í öðru eins veseni með annan bíl og hann er ónýtur eftir 67 þúsund kílómetra akstur... Ólíkt einu umboði sem ég þekki til þá er það ekki þannig að ég fái nokkuð bætt, bíllinn var sjáið bara í eins árs ábyrgð... og svo virðist Páll í Ístraktor haldinn þeirri skoðun að mér sé ekki frjálst að segja satt og rétt frá hans viðbrögðum. Fékk skemmtilegt bréf frá honum áðan og fer það hér á eftir í heild. Frá: Páll Gíslason Dags: Föstudagur 7. júní 2002 kl. 13:43 Til: 'Halldor E' Efni: RE: BT. Halldórs. Ég hef óskað eftir því við lögmann minn að skoða það sem þú hefur sett inná netið um mig og mitt fyrirtæki. Ef tilefni telst til verður höfðað mál á hendur þér fyrir meiðyrði og atvinnuróg. Páll Gíslason Véltæknifræðingur Forstjóri Ístraktor ehf. Svo mörg voru þaug orð, dæmið er þá þetta: Ef kúnni+bíll skemmast+ þú segja sögu þína=lögfræðingur brilliant! posted by Halld� 6:37 AM . . .
Magnað, skrapp í 10-11 í Lágmúla áðan og rak þar augun í stríðsletur ofanvið gluggann innandyra "ÖRBYLGJUOFNAR- Bjargið ykkur sjálf!" Ég ætlaði að fara að henda mér útúr búðinni og leita skjóls bakvið blómapott en þarsem aðrir sem þarna voru að versla tóku þessu með ró ákvað ég að taka áhættuna og ljúka innkaupunum. posted by Halld� 12:01 PM . . .
Smá spurning fyrst þessi síða er svona mikið sótt, Páll í Ístraktor sagði mér í fyrrnefndri verslunarferð að það væri fullt af Opel og Volkswagen bílum sem færu eins og Alfan góða sem entist bara 67 þúsund kílómetra, gaman væri að fá viðbrögð frá Heklu eða Bílheimum við þessum fullyrðingum. Email adressan er sem áður halldor_e@hotmail.com posted by Halld� 9:15 AM . . .
Ég var að fatta afhverju þessi blogg síða var heimsótt yfir 700 sinnum í kvöld..... bannsett.... uhm, blessuð Tilveran setti link á mig.... ....var ekkert að skilja í því að ég fékk tölvupóst frá liði utan vinahópsins sem ekki tengdist sölu á bókum eða megrunarefnum! posted by Halld� 4:52 PM . . .
Stafavíxl dagsins í dag er: Mál og Menning /Menn og Máling posted by Halld� 4:49 PM . . .
Ég er búinn að fá svolítið af pósti í kvöld varðandi Ölfuna... enginn se, vill kaupa bíl sem ekki er bíll svo ekki fékk ég tilboð... fékk hinsvegar reynslusögur frá tveimur mjög skemmtilegum Ölfueigendum og mun ég birta þeirra sögur hér ef þeir eru til í að koma undir nafni því ekki vill maður vera að setja fram eitthvað nafnlaust bull. posted by Halld� 4:46 PM . . .
ó, það má ekki gleymast að ég þarf að fá minnst 750 þúsund fyrir Ölfulíkið og má senda fyrirspurnir á halldor_e@hotmail.com Kaupandi getur væntanlega flutt hróið til Ítalíu og leitað uppi þjónustu... posted by Halld� 11:07 AM . . .
Tjahh.... Stundum verður maður hissa! Ég festi kaup á Alfa Romeo í nóvember 98, fékk hann úr kassanum.... eða það held ég allaveganna allaveganna er það líklegra að hann hafi komið í pappakassa en gámi því hann var með slatta af rispum sem "fixað" var í umboðinu... Ég kippi mér ekkert upp við smáatriði svo ég velti mér ekkert uppúr þessu, ekki við miklu að búast hjá fyrirtæki sem heitir ÍsTRAKTOR... viðeigandi nafn því að bílinn hætti að ganga nokkrum dögum eftir komuna til landsins og eftir "viðgerð" í umboðinu gekk hann einsog ískaldur traktor og hljómaði einsog díselbíll einsog margir höfðu orð á. En eftir 67þúsund kílómetra er bíllinn ónýtur, vélin dó! Ég í heimsku minni leitaði til umboðsins því ég bjóst við að bíllinn entist allt að 150þúsund kílómetrum en svo virðist ekki vera, 67þúsund er víst bara gott og sá eigandi Ístraktors ekkert athugavert við þetta, bíllinn væri bara í árs ábyrgð og hananú. Þegar ég sagði honum að mér þætti þetta alveg ótrúlegt og myndi spjalla við blaðamann um þetta því þetta væri saga þá trompaðist blessaður maðurinn og veifaði putta í andlitið á mér og sagði að þá fengi ég bara engan sörvis og svo rauk hann burt (spjall þetta fór fram í matvöruverslun í Garðabæ þar sem ég rakst á kauða) ...hmmm, enginn sörvis, það er ott að þetta spjall okkar Páls í Ístraktor breytir engu í sambandi okkar! Ef einhver vill kaupa svona Ölfu af mér þá hafið samband, hægt að brúka hana sem bókastoð eða kofa í garðinn en fyrir eitthvað um hálfa milljón er víst hægt að gera vagninn ökuhæfan en ég ábyrgist ekki hversu lengi. posted by Halld� 10:21 AM . . .
Vegna engra beiðna er auka stafavíxl/vafastíxl í dag. Víxlið upphafsstöfum í eftirfarandi: Flestir krakkar posted by Halld� 4:30 PM . . .
Stafavíxl dagsins er tileinkað Hrund á Bleiku og Bláu Víxlið upphafsstöfum í eftirfarandi: Hrund Blaðamaður posted by Halld� 4:27 PM . . .
Tjahhh! þar kom að því, ég er farinn að blogga! Þetta er einhver veila sem er að búa um sig hjá fólki á öllum aldri. Útum allan bæ er fólk sem er að skrifa meira en það hefur að segja. Ég get ekki annað en velt fyrir mér hvar þetta endar, þetta minnir einna helst á klikkuðu frænku eins æskuvinar, þessi klikkaða frænka hafði misst karlinn úr klaufaskap (lést í ákaflega klaufalegu slysi sem tengdist stóru baðkari og að heita átti vatnsheldum rafmagnsljósum) tjahh, frænkan hélt allaveganna áfram að bera á borð fyrir karlinn þó að físískt hefði honum verið holað niður í vígða mold mörgum árum áður. Fyrir þá sem eru búnir að týna þræðinum.... þetta með að bera mat á borð fyrir löngu látna finnst mér vera álíka óþarfi og að skrifa eitthvað sem enginn vill lesa. Ef þér finnst þetta skrítin pæling hjá mér pældu þá bara í því að þú ert búin/n að veista heilli mínútu í þetta sem ekkert er..,.... SORGLEGT!!! posted by Halld� 12:29 PM . . .